PARAFIX skilrúmsrimlar
Parafix skilrúmsrimlarnir frá FN Neuhofer eru frábær lausn til að skipta upp rýmum á einfaldan hátt og skapa fallegt yfirbragð. Lokaðir rimlar veita næði á meðan opnir rimlar hleypa inn birtu og gefa rýminu léttara og líflegra yfirbragð. Þeir eru fljótlegir í uppsetningu með tilheyrandi festingasetti, og einfalt er að saga þá til eftir lofthæð. Rimlarnir eru 280 cm langir og seljast í stykkjatali.